Icelandic press

Evrópuþing ungmenna með sérþarfir

Icelandic press

Evrópuþing ungmenna með sérþarfir (Young Voices) var haldið í Portúgal 16. og 17. september. Þingið er haldið á fjögurra ára fresti og markmiðið er að gefa ungmennum með sérþarfir á aldrinum 16-22 ára tækifæri til að ræða saman um aðstæður sínar til menntunar ásamt því að koma á framfæri kröfum sínum og óskum um bætt skilyrði til menntunar. Rúmlega 80 þátttakendur voru á þinginu frá 29 Evrópulöndum. Fulltrúar Íslands voru þær Freyja Haraldsdóttir háskólanemi og Sandra Eyjólfsdóttir framhaldsskólanemi. Fyrri dag þingsins var þátttakendum skipt í fjóra umræðuhópa eftir skólastigum. Tveir hópar fjölluðu um framhaldsskólastig, einn um verkmenntun og einn um háskólastig. Síðari daginn kynntu fulltrúar hópanna fjögurra niðurstöður sínar og fór sá fundur fram í þingsal portúgalska þingsins í Lissabon. Þá voru einnig sýnd veggspjöld sem allir þátttakendur höfðu útbúið fyrir þingið, þar sem þeir kynntu sjálfa sig og óskir sínar um menntun.
Margt athyglisvert kom fram á þinginu. Meðal annars kom fram að nemendur með sérþarfir vilja almennt stunda nám sitt við hlið annarra nemenda, efla þarf fræðslu til kennara um sérþarfir og aðgengismál þarf víða að bæta, bæði að byggingum og upplýsingum. Ungmennin gera þá kröfu að þau eigi sömu tækifæri til menntunar og aðrir. Allar niðurstöður sem fram komu hjá hópunum verða gefnar út í sérstöku riti á vegum Evrópumiðstöðvar fyrir þróun sérkennslu.

mrn.is (electronic journal of the Icelandic Ministry of Education)- Oct. 2007

Online available here.

Last modified Jun 17, 2009