Aðgengi að háskólanámi upplýsingar um HEAG verkefnið

Velkomin(n) á heimasíðu HEAG (Higher Education Accessibility Gude) sem veitir upplýsingar um aðgengi fatlaðra að háskólum víðsvegar um Evrópu.

Til hægri má velja þessar síður á öðrum tungumálum.

HEAG verkefnið sem hófst 2009 er samstarfsverkefni 28 evrópuríkja, aðildarríkja ESB og EES auk Króatíu og Slóvakíu. Höfuðmarkmið verkefnisins er að veita fötluðum stúdentum sem hyggjast stunda háskólanám erlendis bestu mögulegu upplýsingar um þá þjónustu sem stendur til boða, hyggist þeir fara í skiptinám.

Sérfræðingar frá 28 ríkjum hafa unnið saman að þessum upplýsinaggrunni sem má nálgast með eftirfarandi hætti:

  • gegnum heimasíðu hvers lands þar sem má finna upplýsingar um háskólanám á heimamáli og á ensku;

  • gegnum gagnagrunn HEAG sem veitir upplýsingar um sérhæfða þjónustu og aðgengi í háskólum í hverju landi fyrir sig.

Á heimasíðum landanna er að finna upplýsingar um þjónustu við fatlaða stúdenta og aðkomu stjórnvalda að málaflokknum. Þá má finna upplýsingar þá aðila sem hægt er að leita til, þar á meðal fulltrúa HEAG í hverju landi.

Til viðbótar getur þú leitað beint í gagnagrunninum að tilteknum háskólum og þeirri þjónustu sem þeir bjóða fötluðum stúdentum.

Upplýsingar í gagnagrunninum verða uppfærðar á tveggja ára fresti.

Ef þú vilt segja álit þitt á nytsemi þessara upplýsinga fyrir þig settu þig þá í samband HEAG fulltrúa þíns lands.

Möguleikar á skiptinámi í Evrópu

Tækifæri fatlaðra til að ferðast eða stunda nám erlendis teljast til persónulegra réttinda samkvæmt alþjóðlegum og Evrópskum mælikvörðum. Í samþykkt Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðra frá 2006 fjalla nokkrar greinar um tækifæri fatlaðra til að ferðast og stunda nám erlendis.

  • 18. grein: Frelsi til flutninga og þjóðernis:

réttur fatlaðra einstaklinga til að ferðast á milli landa, frelsi til að velja sér búsetu og þjóðernis til jafns við aðra …

  • 20. Grein – Möguleikar einstaklinga til að ferðast:

... tryggja frelsi fatlaðra til að ferðast á milli landa ...

Evrópusambandið (ESB) styðst við tiltekin markmið í öllu sínu starfi – ferðafrelsi á milli landa fyrir alla borgara og stuðningur við símenntun eru tveir lykilþættir til að stuðla að sameiginlegri Evrópskri menningu. Aðgengi að æðri menntun er grundvallaratriði í þessu samhengi og þátttaka 46 ríkja í Bologna-ferlinu miðar að því að skapa Evrópskt háskólasvæði þar sem höfuðáhersla er lögð á möguleika nemenda til að stunda nám erlendis.

Árið 2007 gáfu ráðherrar ESB, sem fara með nám á háskólastigi, út orðsendingu, London Communiqué, þar sem segir meðal annars:

Háskólanám ætti að gegna stóru hlutverki í að efla samevrópska menningu, draga úr ójöfnuði og auka færni og þekkingu Evrópubúa ... Við deilum því samfélagslega markmiði að evrópskir háskólanemar endurspegli ávallt fjölbreytileika aðildarþjóðanna. Við munum því áfram beina kröftum okkar í að bjóða viðeigandi þjónustu fyrir stúdenta, skapa fleiri og sveigjanlegri námsleiðir og auka þátttöku fatlaðra á öllum stigum á grundvelli jafnræðis ...

Leuven/Louvain-la-Neuve Communiqué orðsendingin frá 2009 undirstrikar mikilvægi námsdvalar háskólanema erlendis; við teljum því að möguleikar nemenda til að dvelja við erlenda háskóla

Við teljum því að möguleikar nemenda, rannsakenda og starfsfólks til að dvelja við erlenda háskóla auki gæði náms og rannsókna; hann eflir akademíska og menningarlega samhæfingu háskólanáms í Evrópu. Möguleiki til að stunda nám erlendis er mikilvægur fyrir framfarir, atvinnutækifæri, einstaklingsþroska og eykur virðingu fyrir fjölbreytileika og skilning á öðrum menningarhefðum.

Innan ESB eru ýmsar leiðir til að ná markmiðum um ferða- og dvalarmöguleika fatlaðra en þar má helstar nefna rammaáætlun ESB og Erasmus áætlunina.

Í grunninn liggur höfuðáhersla Erasmus áætlunarinnar á að auka möguleika sína til að stunda nám við erlenda háskóla og hvað varðar fatlaða stúdenta njóta þeir sérstakra strykja.


Frekari upplýsingar um umsóknir og styrki er að finna hjá Landsskrifstofu menntaáætlunar ESB í þínu heimalandi.

Last modified Jan 27, 2010